Flýtileiðir á vef Háskóla Íslands:


Flýtileiðir:

Fara efst a siðu

Spurning af vísindavef:

Fara efst a siðu
Vísindavefurinn
Hverjar eru helstu hættur pokadýra, eiga þau einhverja óvini, og hverja þá?

Hugvísindastofnun

Hugvísindastofnun
Innskráning í Uglu:

Rannsóknastyrkir á sviði hugvísinda

Hugvísindastofnun veitir starfsmönnum Hugvísindasviðs aðstoð við að afla upplýsinga og sækja um styrki til rannsókna, ráðstefna, útgáfu og annars sem rannsóknastarfi við kemur.

Hér er að finna upplýsingar um helstu sjóði og rannsóknaáætlanir sem og innlenda aðila sem veita upplýsingar og aðstoð. Hægt er að velja yfirlitssíðu með flýtileiðum að nánari upplýsingum eða krækjur þar sem sjóðum er skipt í nokkra flokka og gerð stuttlega gerð grein fyrir hverjum sjóði: Íslenskir rannsóknastyrkir (Háskólinn og RANNÍS); Evrópusjóðir og -áætlanir; Norrænir sjóðir; Styrkir til ráðstefnu-, funda- og námskeiðahalds; Styrkir til nemenda; Styrkir til þýðingar og útgáfu. Sami sjóður getur verið í nokkrum flokkum.

Önnur aðstoð og upplýsingar
Rannsóknaþjónusta Háskóla Íslands
 er þjónustustofnun fyrir íslenskt þekkingarsamfélag sem aðstoðar við öflun styrkja.

Rannsóknamiðstöð Íslands, RANNÍS, sýslar með nokkra innlenda sjóði, er aðaltengiliður við 7. rannsóknaáætlun Evrópusambandsins, norrænu NordForsk-áætlunina og fleiri norrænar og evrópskar áætlanir sem Ísland á aðild að. Rannís heldur úti öflugri upplýsingasíðu, veitir almenna ráðgjöf og svarar fyrirspurnum. 

Upplýsingamiðstöð menningaráætlunar Evrópusambandsins veitir upplýsingar um áætlunina og ráðgjöf um umsóknagerð.

Landsskrifstofa Menntaáætlunar Evrópusambandsins - áætlunin skiptist í fjóra þætti þar sem ERASMUS og LEONARDO vega þyngst fyrir fræðimenn og kennara á háskólastigi.