Flýtileiðir á vef Háskóla Íslands:


Flýtileiðir:

Fara efst a siðu

Spurning af vísindavef:

Fara efst a siðu
Vísindavefurinn
Hvað getur þú sagt mér um Karlsvagninn?

Hugvísindastofnun

Hugvísindastofnun
Innskráning í Uglu:

Útgáfa

Hugvísindastofnun og aðildarstofnanir hennar  
gefa út bækur, ritraðir og tímarit. Einnig er mikil samvinna við Háskólaútgáfuna. Þá veitir Hugvísindastofnun deildarmönnum ýmsa þjónustu á sviði útgáfu, aðstoðar við fjármál, sér um samskipti við forlag og aðstoðar við að finna fagfólk eins og hönnuði, umbrotsfólk og prófarkalesara sé þess óskað. Fyrirhugað er að hefja á árinu 2007 útgáfu doktorsritgerða sem skrifaðar eru við deildina.

Hér á síðunni eru kynntar bækur sem gefnar eru út undir merki Hugvísindastofnunar.

Bókmenntafræðistofnun gefur út sjö ritraðir: Afmælisrit , Fræðirit, Höfundar, Íslensk rit, Íslensk trúarrit, Studia Islandica og Þýðingar. Auk þeirra gefur stofnunin út valdar bækur um bókmenntafræði og bókmenntasögu. Háskólaútgáfan annast dreifingu. Nánar á heimasíðu Bókmenntafræðistofnunar.

Sagnfræðistofnun gefur út þrjár ritraðir: Sagnfræðirannsóknir - STUDIA HISTORICA, Ritsafn Sagnfræðistofnunar og Heimildasafn Sagnfræðistofnunar. Nánar á heimasíðu Sagnfræðistofnunar.

Málvísindastofnun  gefur út fræðirit, kennslubækur og handbækur um samtímalega og sögulega málfræði. Nánari á heimasíðu Málvísindastofnunar.

Heimspekistofnun gefur út greinasöfn, bækur og kennsluefni um heimspeki og hefur lagt ríka áherslu á þýðingu sígildra heimspekirita á íslensku. Nánar á heimasíðu Heimspekistofnunar.

Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum gefur út ritraðir með tvímálabókum, ráðstefnuritum og völdum fræðiritum á fræðasviðinu.