Flýtileiðir á vef Háskóla Íslands:


Flýtileiðir:

Fara efst a siðu

Spurning af vísindavef:

Fara efst a siðu
Vísindavefurinn
Hvernig töldu stóumenn að við gætum orðið dygðug?

Hugvísindastofnun

Hugvísindastofnun
Innskráning í Uglu:

Ráðstefnur og þing

Hugvísindastofnun, en þó einkum aðildar-
stofnanirnar, standa árlega fyrir ráðstefnum, málstofum og fyrirlestrum. Ýmist er um að ræða reglubundna eða einstaka viðburði, til að sameina og miðla þekkingu og skapa um leið grundvöll fyrir frekara rannsóknarstarf. Eftirfarandi er yfirlit yfir helstu reglubundna viðburði:

Hugvísindaþing, árlegt þing Hugvísindastofnunar, hefur verið haldið í samstarfi við Guðfræðideild og ReykjavíkurAkademíuna. Það er kynnt
sérstaklega hér á síðunni.                                                     

Frændafundur er ráðstefna sem haldin er þriðja  hvert ár í
samstarfi Hugvísindadeildar og Fróðskaparseturs í Færeyjum sem hafa gert með sér samning um rannsóknarsamvinnu. Fyrirlestrarnir hafa komið út í samnefndum bókum. Sjá nánar.

Fyrirlestraröð Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur
Á hverjum vetri stendur Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur fyrir fyrirlestraröð þar sem fræðimenn innan stofnunarinnar og gestafyrirlesarar kynna rannsóknir sínar. Auk hefðbundinna fyrirlestra er stundum boðið upp á sérstök þemu eins og Þýðing öndvegisverka sem hleypt var af stokkunum haustið 2006. Þar koma þýðendur og skýra frá vinnu sinni við þýðingar á öndvegisverkum heimsbókmenntanna.

Hádegisfundir Heimspekistofnunar
Heimspekistofnun efnir að jafnaði til málstofu, Hádegisfundar Heimspekistofnunar, á föstudögum kl. 12.05-13.15 í stofu 111 Aðalbyggingu.

Íslenska söguþingið
Sagnfræðistofnun stendur að söguþingi ásamt fleiri aðilum.
Fyrsta íslenska söguþingið var haldið árið 1997, það næsta árið 2002 og hið þriðja árið 2006. Markmið þeirra sem að þinginu standa er að gefa fræðimönnum tækifæri til þess að kynna nýjustu rannsóknir sínar og leiða saman sagnfræðinga - og aðra áhugamenn um sögu - til þess að ræða það sem hæst ber í faginu.

Jón Sigurðsson Memorial Lectures
Sagnfræðistofnun stendur árlega fyrir fyrirlestri sem kenndur er við Jón Sigurðsson. Jafnan hefur erlendum fyrirlesara verið boðið til landsins.

Málvísindakaffi (linguistics discussion group)
Yfir veturinn er að jafnaði haldin málstofa um málfræði í Nýja Garði á hverjum föstudegi kl. 11-13. Matthew Whelpton hefur umsjón með málstofunni. Þar eru haldnir fyrirlestrar af ýmsu tagi, allt frá formlegum erindum til óformlegra kynninga á rannsóknum sem ekki eru langt komnar þar sem markmiðið er að fá viðbrögð og álit annarra málfræðinga. Umræður eru gjarna líflegar.

Málþing nemenda
Árlega eru haldin málþing þar sem nemendur flytja fyrirlesara. Þau eru af ýmsum toga, til dæmis hafa slík þing verið nokkurs konar uppskeruhátíð í lok námskeiðs og í sumum greinum eru þau árviss viðburður hjá nemendum á MA-stiginu. Sjá nánar.

Málþing Ritsins, tímarits Hugvísindastofnunar, hafa verið haldin nánast árlega frá því Ritið hóf göngu sína og verið grunnur að þema heftis. Ýmist hefur Hugvísindastofnun eða Ritið sjálft staðið fyrir málþingi eða hefti verið byggð á málþingum á vegum annarra. Sjá nánar.

Norrænt sagnfræðingaþing
Norrænt sagnfræðingaþing er haldið á þriggja ára fresti. Norrænu sagnfræðingaþingin rekja rætur sínar allt til ársins 1905 en enginn Íslendingur tók þátt í því þingi. Næsta þing var haldið 1920 og síðan hafa þau verið haldin reglulega, um það bil þrjú á hverjum áratug. Íslendingar héldu sitt fyrsta þing árið 1987 og þingað verður á Íslandi sumarið 2007. Landsnefnd íslenskra sagnfræðinga stýrir þingum sem haldin eru hér á landi undir forystu Sagnfræðistofnunar.

Rask-ráðstefnan
Málvísindastofnun og Íslenska málfræðifélagið standa saman að árlegu þingi um málfræði sem kennt er við Rasmus Kristján Rask. Fyrsta ráðstefnan var haldin árið 1986 og sú 21. í janúar 2007. Dagskrá frá öllum Rask-ráðstefnum er að finna á vef Íslenska málfræðifélagsins.

Aðrir viðburðir
Af öðrum viðburðum frá undanförnum árum má nefna örfá dæmi sem endurspegla fjölbreytnina: Skáldsagnaþing var árið 2001 og sama ár norræn ráðstefna um rannsóknir á norrænum málum sem öðru eða erlendu máli. Á afmælisári Halldórs Laxness var haldið stórt þing um ævi hans og verk. Árið 2003 var einnig norræn ráðstefna, Nordisk Forening for Litteraturforskning (NorLit), sem fékk yfirskriftina Bókmenntir og sjónmenning. Er vit í hlátri var haldin í samstarfi við Þjóðleikhúsið árið 2003 og sama ár var haldin á Vestfjörðum ráðstefnan Vestfirðir: aflstöð íslenskrar sögu. Málþing um fagurfræði var haldið 2004, einnig þingið Þýðingar og tungutækni. Árið 2005 var þingið Heimur ljóðsins og 2005 og 2006 voru þrisvar haldin Réttarhöld í samvinnu við Þjóðleikhúsið.