
Málvísindastofnun Háskóla Íslands er vísindaleg rannsóknastofnun. Hún er ein af grunnstofnunum Hugvísindastofnunar Háskóla Íslands og starfar innan hennar samkvæmt 9. grein laga nr. 41/1999 um deildir og rannsóknastofnanir, sbr. einnig reglur um Hugvísindastofnun frá 11. desember 2009. Hlutverk Málvísindastofnunar Háskóla Íslands er nánar skilgreint í starfsreglum sem stjórn Hugvísindastofnunar hefur samþykkt.
Hlutverk Málvísindastofnunnar
- Að vera vettvangur rannsókna í málvísindum og undirgreinum þeirra.
- Að standa fyrir útgáfu, ráðstefnum, fyrirlestrum og annarri starfsemi sem styður rannsóknir og kennslu í málvísindum.
- Að veita ungum fræðimönnum og framhaldsnemum í málvísindum aðstöðu og tækifæri til rannsóknastarfa.
- Að efla tengsl rannsókna og kennslu.
- Að sinna verkefnum á sviði málvísinda sem miða að þjónustu og fræðslu.
Þriggja manna stjórn stýrir stofnuninni og tvær rannsóknastofur starfa innan vébanda hennar.
Formaður
- Jóhannes Gísli Jónsson, prófessor, jj@hi.is
Stjórn
- Jóhannes Gísli Jónsson, prófessor, formaður, jj@hi.is
- Sigríður Þorvaldsdóttir, aðjunkt, meðstjórnandi, sth@hi.is
- Guðrún Þórhallsdóttir, dósent, varamaður, gth@hi.is
- Stefanie Bade, fulltrúi doktorsnema, stb21@hi.is
Starfsreglur fyrir Málvísindastofnun Háskóla Íslands
1. gr.: Almennt
Málvísindastofnun Háskóla Íslands er vísindaleg rannsóknastofnun, starfrækt sem grunnstofnun innan vébanda Hugvísindastofnunar Háskóla Íslands.
2. gr.: Hlutverk
Hlutverk Málvísindastofnunar er:
- Að vera vettvangur rannsókna í málvísindum og undirgreinum þeirra, ein eða í samvinnu við aðra;
- Að gangast fyrir útgáfu, ráðstefnum, fyrirlestrum og hvers kyns annarri starfsemi sem stutt gæti rannsóknir og kennslu í málvísindum og eflt tengsl við alþjóðlegt háskólasamfélag sem og við íslenskt þjóðlíf;
- Að veita rannsóknanemum, nýdoktorum og gestafræðimönnum aðstöðu og tækifæri til rannsóknastarfa eftir því sem kostur er og efla um leið tengsl rannsókna og kennslu.
Stjórn Málvísindastofnunar getur ákveðið, að fengnu samþykki félagafundar eða ársfundar og í samráði við stjórn Hugvísindastofnunar (sbr. 4. gr. reglna um Hugvísindastofnun Háskóla Íslands), að koma á fót rannsóknastofum sem sinna tilteknum rannsóknaverkefnum, rannsóknasviði eða samstarfi sem fellur að hlutverki Málvísindastofnunar.
3. gr.: Fjármál og rekstur
Stofnunin fær árlegt framlag sem stjórn Hugvísindastofnunar ákveður hverju sinni. Stofnunin getur auk þess fengið framlag til einstakra verkefna úr sjóði Hugvísindastofnunar. Stofnunin aflar eigin tekna eftir því sem kostur er.
Stofnunin nýtur þjónustu Hugvísindastofnunar um bókhald og daglegan rekstur eftir samkomulagi formanns stjórnar Málvísindastofnunar og stjórnarformanns Hugvísindastofnunar hverju sinni. Fjárhagsáætlun ásamt yfirliti yfir rekstur liðins árs skal lögð fyrir forseta Hugvísindasviðs og stjórn Hugvísindastofnunar til samþykktar. Stofnunin á aðild að sameiginlegu húsnæði Hugvísindastofnunar.
Reikningshald stofnunarinnar skal vera hluti af reikningshaldi Háskólans.
4. gr.: Aðild
Fastir kennarar í íslenskri málfræði, almennum málvísindum og táknmálsfræði innan Íslensku- og menningardeildar Háskóla Íslands eru félagar í Málvísindastofnun, nema þeir óski eftir og fái aðild að annarri grunnstofnun. Stundakennarar, sérfræðingar og styrkþegar stofnunarinnar, nýdoktorar og doktorsnemar á fagsviðum stofnunarinnar og aðrir kennarar við Háskóla Íslands geta sótt um og fengið aðild að stofnuninni með samþykki stjórnar á meðan þeir eru í námi eða starfa við Háskólann. Sama gildir um kennara sem látið hafa af störfum fyrir aldurs sakir en gert sérstakan starfssamning við Háskólann. Einungis fastir kennarar á Hugvísindasviði Háskóla Íslands hafa atkvæðisrétt á ársfundi.
5. gr.: Stjórn og hlutverk
Forseti Hugvísindasviðs skipar Málvísindastofnun þriggja manna stjórn til þriggja ára í senn.
Félagar í Málvísindastofnun tilnefna, á grundvelli kosningar á ársfundi, formann stjórnar úr hópi fastra kennara.
Einnig tilnefnir ársfundur einn meðstjórnanda og annan til vara úr hópi félaga og skal að minnsta kosti annar þeirra vera fastur kennari.
Þriðji stjórnarmaðurinn er doktorsnemi á fagsviðum stofnunarinnar sem Félag doktorsnema á Hugvísindasviði hlutast til um að þeir velji úr sínum hópi.
Einungis félagar í Málvísindastofnun geta setið í stjórn. Meðstjórnandi er varaformaður stjórnar sé hann fastur kennari. Ef svo er ekki skal varamaður í stjórn taka sæti formanns ef hann forfallast eða þarf að víkja sæti.
Stjórnarformaður hefur umsjón með daglegum rekstri og fjármálum stofnunarinnar og gengur frá tillögum að rekstraráætlun. Hann á sæti í stjórn Hugvísindastofnunar.
Stjórnin útfærir stefnu Málvísindastofnunar og ber ábyrgð á framkvæmd hennar. Stjórnin ber ábyrgð á fjármálum stofnunarinnar og daglegum rekstri gagnvart stjórn Hugvísindastofnunar og forseta Hugvísindasviðs. Stjórnin sker úr í vafaatriðum sem upp kunna að koma og varða innri starfsemi stofnunarinnar.
Formaður stjórnar boðar stjórnarfundi bréflega, eða í tölvupósti, með þriggja daga fyrirvara. Fundarboð skal greina frá dagskrá fundar.
Skylt er að boða stjórnarfund óski meirihluti stjórnar þess. Sama gildir ef forseti Hugvísindasviðs eða rektor ber fram slíka ósk og hefur þá hann, eða sá sem sækir fund í umboði hans, málfrelsi og tillögurétt á fundinum.
Falli atkvæði jöfn á stjórnarfundi ræður atkvæði formanns eða þess sem gegnir formannsstörfum.
Halda skal gerðabók stjórnar og skulu staðfestar fundargerðir færðar í hana.
6. gr.: Ársfundur og félagafundur
Ársfund skal halda á fyrsta ársfjórðungi hvers árs. Formaður skal boða til hans með a.m.k. einnar viku fyrirvara bréflega eða með tölvupósti. Ársfundur tilnefnir fulltrúa í stjórn (sbr. 5. gr.) og fjallar um stefnu stofnunarinnar. Aðeins fastir kennarar á Hugvísindasviði hafa atkvæðisrétt á ársfundi.
Fari þriðjungur félaga í Málvísindastofnun fram á það skal boða sérstakan félagafund. Sömu reglur um atkvæðisrétt gilda fyrir félagafund og ársfund.
7. gr.: Réttindi og skyldur félaga
Félagar geta sótt um aðstöðu, þjónustu og styrki til Málvísindastofnunar og Hugvísindastofnunar. Þeir geta birt greinar og rit, sótt um styrki, skipulagt ráðstefnur, fyrirlestra og samstarfsfundi, rannsóknarverkefni og samvinnu í nafni stofnunarinnar, með samþykki ársfundar eða stjórnar í umboði hans eftir því sem tilefni er til. Félagar eiga rétt til setu á ársfundi. Formaður stjórnar getur falið einstökum félögum trúnaðarstörf á vegum stofnunarinnar.
8. gr.: Gildistaka
Starfsreglur þessar, sem stjórn Hugvísindastofnunar hefur sett að fenginni tillögu stjórnar Málvísindastofnunar, sbr. 2. mgr. 4. gr. reglna um Hugvísindastofnun Háskóla Íslands nr. 1022/2009, taka gildi 1. október 2010. Um leið falla úr gildi eldri starfsreglur. Núverandi stjórn stofnunarinnar sem skipuð var skv. eldri reglum heldur umboði sínu og starfar í samræmi við ákvæði í þessum reglum fram að næsta ársfundi.
Hægt er að sækja um aðild að stofnuninni með tölvupósti til stjórnarformanns.
Félagar í Málvísindastofnun eru nú:
- Aðalsteinn Hákonarson, Doktorsnemi
- Anton Karl Ingason, Lektor
- Ásgrímur Angantýsson, Prófessor
- Dagbjört Guðmundsdóttir, Doktorsnemi
- Eiríkur Rögnvaldsson, Prófessor emeritus
- Filippa Lindahl, Nýdoktor
- Gísli Rúnar Harðarson, Nýdoktor
- Guðrún Theodórsdóttir, Lektor
- Guðrún Þórhallsdóttir, Dósent
- Haraldur Bernharðsson, Dósent
- Höskuldur Þráinsson, Prófessor emeritus
- Ingunn Hreinberg Indriðadóttir, Doktorsnemi
- Iris Edda Nowenstein, Doktorsnemi
- Jóhannes Gísli Jónsson, Prófessor
- Jón Axel Harðarson, Prófessor
- Jón Símon Markússon, Doktorsnemi
- Katrín Axelsdóttir, Lektor
- Kolbrún Friðriksdóttir, Aðjunkt
- Kristján Árnason, Prófessor emeritus
- Margrét Guðmundsdóttir, Doktorsnemi
- Margrét Jónsdóttir , Prófessor
- María Anna Garðarsdóttir, Aðjunkt Heimasíða
- Matthew Whelpton, Prófessor
- Mirko Garofalo, Doktorsnemi
- Rannveig Sverrisdóttir, Lektor
- Rósa Signý Gísladóttir, Lektor
- Sigríður Sigurjónsdóttir, Prófessor
- Sigríður Þorvaldsdóttir, Aðjunkt
- Stefanie Bade, Doktorsnemi
- Tinna Frímann Jökulsdóttir, Doktorsnemi
- Vanessa Isenmann, Doktorsnemi
- Þóra Björk Hjartardóttir, Dósent
- Þórhalla Guðmundsdóttir Beck, Doktorsnemi
Stofnanir og félög
- American Speech-Language-Hearing Association (ASHA)
- Deutsche Gesellschaft f. Sprachwissenschaft (DGfS)
- Fróðskaparsetur Færeyja
- Háskólaútgáfan
- ICLA (International Cognitive Linguistics Association)
- Indogermanische Gesellschaft
- Íslenska málfræðifélagið
- Íslensku- og menningardeild
- Linguistic Association of Great Britain (LAGB)
- Máltæknisetur
- Meertens Institute, Amsterdam
- Northern European Association for Language Technology (NEALT)
- Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra
- Samtök móðurmálskennara
- Samtök tungumálakennara á Íslandi (STÍL)
- Societas Linguistica Europaea (SLE)
- Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
- Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum
Orðabækur og orðasöfn
- Hugtakasafn þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins
- Íðorðabanki Íslenskrar málstöðvar
- Íslensk orðabók - á Snöru (aðeins fyrir áskrifendur)
- Íslensk rímorðabók
- Íslensk samheitaorðabók - á Snöru (aðeins fyrir áskrifendur)
- ÍSLEX - íslensk-skandinavísk orðabók
- Mergur málsins - á Snöru (aðeins fyrir áskrifendur)
- Ordbog over det gamle norske sprog - Orðabók Fritzners
- Ritmálssafn Orðabókar Háskólans
- Snara - ýmsar orðabækur (aðeins fyrir áskrifendur)
- Stafsetningarorðabókin - á Snöru (aðeins fyrir áskrifendur)
- Stóra orðabókin um íslenska málnotkun- á Snöru (aðeins fyrir áskrifendur)
Málleg gagnasöfn
- Beygingarlýsing íslensks nútímamáls
- Bækur.is
- Íslensk sendibréf frá 19. öld
- Íslenskar mállýskur - upplýsingasíða um íslenskar mállýskur
- Íslenskt orðanet
- Íslenskt textasafn
- Málfarsbankinn
- Málföng - upplýsinga- og tenglasíða um íslensk málföng
- Mörkuð íslensk málheild
- Orðasambönd
- Netútgáfan
- Tímarit.is
Mállegur hugbúnaður
- AntConc - orðstöðulykilsforrit fyrir Windows, OS X og Linux
- EDISYN - leitarvél fyrir tilbrigði í setningagerð í ýmsum málum
- IPA lyklaborð
- Íslenski trjábankinn, IcePaHC
- Praat - hljóðfræðiforrit fyrir Windows, OS X og Linux
- Reynir - málgreinir
- ScanDiaSyn - leitarvél fyrir mállýskuafbrigði í norrænum málum
- Skrambi - samhengisháð leiðrétting
Rannsóknar- og þróunarverkefni
- EDISYN - ýmis rannsóknaverkefni um tilbrigði í setningagerð [Þarna getur hver sem er bætt inn upplýsingum um verkefni.]
- GRIMM (Grammar in My Mind), Lundi
- LANCHART, Kaupmannahöfn (Language Change in Real Time)
- META-NET
- META-NORD