I. Markmið
Markmið sjóðsins er að efla rannsóknir og rannsóknatengda starfsemi innan Hugvísindasviðs með styrkveitingum, einkum ráðstefnur og útgáfu. Sjóðurinn er fjármagnaður með hluta af þeirri fjárveitingu sem Hugvísindastofnun fær frá Hugvísindasviði.
II. Umsóknarfrestur, úthlutun og ráðstöfun
Úthlutað er úr sjóðnum tvisvar á ári, 15. apríl (umsóknarfrestur til 1. apríl) og 15. desember (umsóknarfrestur 1. desember) nema annað sé auglýst.
Umsóknir eru metnar af stjórn Hugvísindastofnunar, eða starfsmönnum og stjórnarformanni í umboði hennar. Leitast er við að styrkja sem flest verkefni sem uppfylla skilyrði sjóðsins, en fjöldi styrkja og upphæðir ráðast þó af fjárhagsstöðu sjóðsins.
Styrkur er lagður inn á viðkomandi viðfangsnúmer innan Hugvísindasviðs. Styrkir eru að jafnaði greiddir þegar kostnaður liggur fyrir.
III. Sjóðurinn veitir styrki:
- til innlendra og alþjóðlegra ráðstefna,
- vegna heimsókna erlendra boðsgesta,
- til útgáfu á vegum stofnana og stofa,
- upp í kostnað við þýðingu eða til málfarslegrar aðstoðar vegna birtingar vísindagreina.
Nánar um styrki
1. Styrkir til að halda ráðstefnu/málþing
Stofnanir og stofur sviðsins geta sótt um þessa styrki, einnig deildir og greinar en eindregið er hvatt til samstarfs við rannsóknastofnanir og -stofur sviðsins.
Viðmiðunarreglur (fyrir hvort sem er ráðstefnur eða málþing):
- Ráðstefnan (eða málþingið) skal haldin á Íslandi og vera opin (með eða án skráningar) og auglýst með góðum fyrirvara á viðeigandi vettvangi (póstlistum og/eða vefsíðum).
- Ráðstefnan skal haldin á vegum Hugvísindasviðs eða stofnunar/stofu/deildar/greinar innan Hugvísindasviðs og skal það koma skýrt fram í kynningum allra styrktra ráðstefna.
- Ráðstefnuhaldið getur verið í samvinnu við aðra. Styrkir eru þó ekki veittir til ráðstefna nema starfsmenn sviðsins vinni að undirbúningi og framkvæmd að einhverju marki.
- Dagskrá skal að lágmarki vera 2,5 klukkustundir (3-4 erindi) og að jafnaði er skilyrði að fastir starfsmenn sviðsins, nýdoktorar eða doktorsnemar sem eru virkir í námi haldi erindi (undanþága er einkum möguleg fyrir ráðstefnur á sviði þverfaglegu stofnananna).
- Styrktar ráðstefnur skulu að jafnaði reknar gegnum verkefnisnúmer innan Hugvísindasviðs eða ráðstefnuþjónustu sem Hugvísindastofnun skiptir við.
- Ef aðrir aðilar annast fjárumsýslu skal umsækjandi gera grein fyrir þætti sínum í undirbúningi og framkvæmd. Styrkur er aðeins veittur sé það framlag umtalsvert að mati stjórnar Hugvísindastofnunar. Sömuleiðis er gerð rík krafa um uppgjör.
- Sérhver ráðstefna þarf að hafa fjárhagslegan bakhjarl sem samþykkir að greiða kostnað umfram tekjur og styrki ef þörf krefur. Verði afgangur af rekstri ráðstefnunnar renna allt að 100.000 kr. til bakhjarlsins sé hann innan Hugvísindasviðs, ella til sjóðsins. Afgangur umfram 100.000 krónur rennur til sjóðsins.
- Hægt er að sækja um styrk allt að ári fyrir ráðstefnu eða í næstu úthlutun eftir að hún var haldin.
Þeir sem halda ráðstefnur eru hvattir til að sækjast eftir öðrum styrkjum til ráðstefnuhaldsins.
Styrktir kostnaðarliðir:
- Ráðstefnur/málþing með skráningu: Undirbúningur eru áætlaður 2500 kr. á hvern skráðan þátttakanda
- Ráðstefnur/málþing án skráningar: Undirbúningur eru áætlaður 1000 kr. á hvern þátttakanda
- Kostnaður vegna boðsfyrirlesara
- Kostnaður vegna húsnæðis
- Kostnaður vegna veitinga
- Kostnaður vegna aðstoðarfólks á sjálfri ráðstefnunni
- Annað sem fella má undir grunnkostnað við ráðstefnuhald og er greitt samkvæmt reikningum af viðfangsnúmeri innan Hugvísindasviðs. Þóknun til fyrirlesara er undanskilin í útreikningi á ráðstefnukostnaði.
- Ef aðrir aðilar annast fjárumsýslu (sbr. 6. lið í viðmiðunarreglum) byggist útreikningur styrks, sé samþykkt að veita hann a) á fyrrgreindum viðmiðunum fyrir undirbúning, b) innsendum reikningum fyrir fargjald og gistingu boðsfyrirlesara, húsnæði fyrir ráðstefnuna og veitingar í kaffi- og matarhléum. Í slíkum tilvikum er ekki tekið tillit til annarra kostnaðarliða við útreikning á styrkupphæð.
Styrkur er veittur fyrir hluta af ofangreindum kostnaði, upp að hámarksstyrk.
Tegundir styrkja:
- Innlendar ráðstefnur:
Þær þurfa að uppfylla allar ofangreindar viðmiðunarreglur.
Hámarksstyrkur er 125.000 krónur sé kostnaður 250.000 eða meira, ella 50% af kostnaði. - Innlendar ráðstefnur haldnar á vegum styrktra rannsóknarverkefna sem njóta hluta af samrekstrarfé.
Þær þurfa að uppfylla allar ofangreindar viðmiðunarreglur.
Hámarksstyrkur 65.000 sé kostnaður 250.000 eða meira, ella 25% af kostnaði. - Fyrirlestraraðir:
Fyrirlestraröð með a.m.k. 3 viðburðum telst jafngildi innlendrar ráðstefnu uppfylli hún að öðru leyti viðmiðunarreglur.
Hámarksstyrkur 125.000 sé kostnaður 250.000 eða meira, ella 50% af kostnaði. - Alþjóðlegar ráðstefnur (með a.m.k. 5 fyrirlesurum sem starfa erlendis):
Þær þurfa að uppfylla allar ofangreindar viðmiðunarreglur.
Hámarksstyrkur er 400.000 krónur sé kostnaður 800.000 eða meira, ella 50% af kostnaði. - Alþjóðlegar ráðstefnur haldnar á vegum styrktra rannsóknarverkefna sem njóta hluta af samrekstrarfé.
Þær þurfa að uppfylla allar ofangreindar viðmiðunarreglur.
Hámarksstyrkur 200.000 sé kostnaður 800.000 eða meira, ella 25% af kostnaði.
Fundir haldnir á vegum rannsóknarverkefna eru ekki styrktir, né lokuð málþing eða semínör á vegum rannsóknarhópa.
2. Styrkir vegna erlendra boðsgesta – EKKI VEITTIR Í DESEMBER 2019
Einungis stofnanir geta sótt um þessa styrki.
Viðmiðunarreglur:
- Sjóðurinn veitir stofnunum fjárstuðning til að taka á móti viðurkenndum fræðimönnum sem starfa erlendis.
- Skilyrði er að gesturinn haldi erindi sem auglýst er opinberlega (a.m.k. á póstlistum/vefsíðum innan Háskóla Íslands) og taki þátt í auglýstu semínari með framhaldsnemum (einkum doktorsefnum).
- Styrkur sjóðsins er 125.000 kr. að hámarki.
- Styrkurinn er ekki veittur vegna boðsgesta sem koma til að halda erindi á ráðstefnu (sjá ráðstefnustyrki).
- Styrkurinn er ekki veittur vegna heimsókna sem fjármagnaðar eru á annan hátt.
- Sækja má um styrkinn með allt að árs fyrirvara. Hann fellur niður hálfu ári eftir heimsóknina hafi hann ekki verið innheimtur.
Á fundi stjórnar Hugvísindastofnunar 3. apríl 2019 var ákveðið að endurskoða fyrirkomulag styrkja vegna heimsókna af þessu tagi fyrir árslok 2019. Á fundi stjórnar 28. október 2019 var ákveðið að fresta þessari endurskoðun en veita ekki styrki af þessu tagi í desember 2019.
2. Styrkir til útgáfu á vegum stofnana
Stofnanir geta sótt um þessa styrki. Umsóknir skulu berast frá forstöðumanni, stjórnarformanni eða verkefnisstjóra í umboði þeirra. Umsóknir skulu berast í desember fyrir þær bækur sem hafa komið út það ár.
Viðmiðunarreglur:
- Hver stofnun getur fengið einn styrk árið 2019 vegna bókar/tímarits sem hefur komið út á hennar vegum á árinu.
- Styrkurinn getur einnig verið til að stofnunin geti stutt við útgáfu bókar eftir fastan starfsmann sem á aðild að stofnuninni þótt útgefandi sé annar ef höfundur þarf að bera hluta útgáfukostnaðar. Styrkurinn rennur þá til viðkomandi bókar.
- Ófrávíkjanlegt skilyrði er að bók komi úr prentun eða birtist á vef fyrir lok styrkársins.
- Hver styrkur er 220.000 árið 2019.
- Styrkþega er heimilt að ráðstafa styrknum til annarra eða fleiri bóka en þeirra sem sótt var um til.
- Mikilvægt er að eftir sem áður sé sótt um styrki til viðeigandi sjóða.
Á fundi stjórnar Hugvísindastofnunar 3. apríl 2019 var ákveðið að endurskoða þessa styrki, jafnvel fella þá niður, sem hafa ber í huga við ákvarðanir um útgáfu stofnana frá og með apríl 2019.
3. Styrkir upp í kostnað við þýðingu eða til málfarslegrar aðstoðar vegna birtingar vísindagreina
Einstaklingar (akademískir starfsmenn) geta sótt um þessa styrki.
Viðmiðunarreglur:
- Greinin er ætluð til birtingar í ritrýndu tímariti (þ.e. greinin verði metin til 10, 15 eða 20 stiga í stigakerfi HÍ).
- Hver starfsmaður getur aðeins fengið einn slíkan styrk á fimm ára fresti.
- Hver styrkur er að hámarki kr. 50.000. Sýna þarf fram á kostnað við aðkeypta aðstoð.
- Styrkur fellur niður ári eftir úthlutun hafi hann ekki verið innheimtur.
Samþykktar á fundi stjórnar Hugvísindastofnunar 28. október 2019.